„Við ætlum að njóta þess að vera á heimavelli og mæta af fullum krafti. Okkar markmið verður að keyra upp hraðann og fá eitthvað út þessu góðan leik,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik spurður um viðureignina við Svartfellinga í undankeppni EM sem fram fer í kvöld. Leikurinn hefst Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum klukkan 18.
- Miðasala er í fullum gangi á stubb.is.
Lið Íslands og Svartfjallalands mættust síðast á HM í byrjun desember. Svartfellingar unnu með níu marka mun, 36:27. Arnar segir frammistöðu íslenska landsliðsins í þeim leik ekki hafa endurspeglað hvað í liðinu býr.
„Eins og ég var heilt yfir ánægður með stelpurnar á HM þá var þetta sennilega slakasta frammistaða okkar á mótinu. Svartfellingum tókst oft á tíðum að leika illa á okkur vegna þess að meiri grimmd vantaði í leik okkar, ekki síst í vörninni.
„Við vitum alveg að við getum betur en að sama skapi er ljóst að Svarfellingar eru með gott lið. Það er margt sem við vitum að við eigum inni sem við verðum að ná fram. Við verðum að vera fastari fyrir í vörninni og auk þess að keyra betur fram völlinn. Það eru meðal annars markmið okkar. Sjáum til hverju það skilar okkur,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari.
Íslenska landsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni í október, gegn Færeyingum á heimavelli og við Portúgal ytra. Eftir leikinn í kvöld heldur íslenska landsliðið til Podgorica og mætir Svartfellingum öðru sinni á sunnudaginn.
Síðustu tveir leikir undankeppninnar verða gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.




