„Við erum bara mjög spenntar en um leið ákveðnar í að ná fimmta sætinu á mótinu,” sagði Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður U20 ára landsliðs kvenna þegar handbolti.is hitti hana að máli fyrir utan hótel landsliðsins, Alexander Palace, í Skopje í Norður Makedóníu í morgun. Íslenska landsliðið leikur í dag við Svía og hefst viðeignin klukkan 16.
Alfa Brá og samherjar eru í óða önn að búa sig undir viðureign við Svía á heimsmeistaramótinu í dag. Sigurlið leiksins keppir um 5. sætið á heimsmeistaramótinu á sunnudaginn við annað hvort landslið Sviss eða Portúgal. Tapliðið leikur um sjöunda sæti við tapliðið úr viðureign Portúgal og Sviss sem eigast við á sama tíma og Ísland og Svíþjóða eigast við.
„Fimmta sætið er það besta sem við getum náð úr þessu og það sæti stefnum við á enda væri það frábær árangur,“ sagði Alfa Brá og bætti við.
„Við unnum þær á HM fyrir tveimur árum í fyrsta leik. Í dag ætlum við að sýna þeim að sigurinn var engin tilviljun,“ sagði Alfa Brá ákveðin.
Lengra myndskeiðsviðtal er við Ölfu Brá efst í þessari frétt.
Handbolti.is er í Skopje og fylgist með leiknum í textalýsingu úr keppnishöllinni frá klukkan 16. Einnig verður streymi frá leiknum á handbolti.is. Eftir leik verða viðtöl við leikmenn og þjálfara.
HMU20: Dagskrá og úrslit síðustu leikdagana