Haukum tókst ekki að leggja stein í götu Vals í dag þegar liðin mættust í Olísdeild kvenna í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda. Valur vann öruggan sigur, 29:23, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:13. Haukar skoruðu tvo síðustu mörk viðureignarinnar í dag.
Valur hefur fjögurra stiga forskot í efsta sæti deildarinnar með 28 stig. ÍBV, sem á leik til góða við KA/Þór nyrðra á morgun, er í öðru sæti. Haukar eru í fjórða sæti með 17 stig eins og Fram í þriðja sæti.
Eins og stundum áður á leiktíðinni átti Hafdís Renötudóttir landsliðsmarkvörður stórleik. Hún varði 17 skot, þar af þrjú vítaköst, og var með tæplega 44% hlutfallsmarkvörslu.
Lovísa Thompson var afar öflug í liði Vals. Hún skoraði níu mörk og var með fjögur sköpuð færi.
Thea Imani Sturludóttir lék ekki með Val að þessu sinni, ekki fremur en í síðustu leikjum. Hún er meidd og hefur lítið æft síðustu vikur.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék best hjá Haukum ásamt Rakel Oddnýju Guðmundsdóttur. Saman skoruðu þær 15 af 23 mörkum Hauka. Sara Sif Helgadóttir, sem einnig er markvörður landsliðsins, náði sér ekki eins vel á strik og Hafdís stalla hennar hinum megin vallarins.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Mörk Vals: Lovísa Thompson 9, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 8/5, Hildur Björnsdóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 3, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Auður Ester Gestsdóttir 1, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 1, Guðrún Hekla Traustadóttir 1, Sigrún Erla Þórarinsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 17/3, 43,6% – Elísabet Millý Elíasardóttir 0.
Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 9/3, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 6/1, Inga Dís Jóhannsdóttir 4, Embla Steindórsdóttir 2, Sonja Lind Sigsteinsdóttir<2.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 7, 19,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.


