- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram herðist róðurinn hjá Blæ og félögum í Leipzig

- Auglýsing -

DHfK Leipzig mátti sín lítils gegn SG Flensburg-Handewitt þegar liðin áttust við í þýsku 1. Deildinni í handknattleik karla í Flensburg í kvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik vann Flensburg að lokum átta marka sigur, 36:28.

Flensburg er þar með í öðru sæti deildarinnar með 39 stig, þremur stigum á eftir toppliði SC Magdeburg, sem á auk þess leik til góða. Leipzig er á botni deildarinnar með aðeins átta stig í 23 leikjum.


Blær Hinriksson átti erfitt uppdráttar í liði Leipzig í kvöld en hann skoraði eitt mark úr sex skotum.

Leipzig er fjórum stigum frá öruggu sæti en HSG Wetzlar, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, er það einnig. Tvö neðstu liðin falla niður í B-deild en Leipzig og Wetzlar hafa enn 11 leiki til þess að reyna að bjarga sér frá falli.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -