Annan leikinn í röð unnu Haukar leikmenn Fram eftir framlengingu í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld., 28:25, en leikið var á Ásvöllum. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 24:24, og eins og í Lambhagahöllinni á þriðjudagskvöldið jafnaði Elín Klara Þorkelsdóttir metin úr vítakasti á síðustu sekúndu. Haukum vantar aðeins einn vinning til þess að komast í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn.
Næsta viðureign liðanna fer fram á miðvikudaginn, 1. maí í Lambhagahöllinn.
Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir kom Fram marki yfir, 24:23, þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Eftir þetta gekk liðunum ekkert að skora. Fram átti boltann á síðustu mínútu, tók leikhlé, marki yfir. Eftir að leikurinn hófst á ný vann Birta Lind Jóhannsdóttir knöttinn og Berglind Benediktsdóttir fiskaði vítakast. Úr því jafnaði Elín Klara. Þar með var leiktíminn úti., 24:24.
Fram skoraði fyrsta mark framlengarinnar áður en Hauka tóku völdin og tryggðu sér sigurinn, 28:25. Staðan að loknum fyrri hálfleik var jöfn, 12:12.
Mörk Hauka: Sara Odden 8, Elín Klara Þorkelsdóttir 7/1, Alexandra Líf Arnarsdóttir 5, Inga Dís Jóhannsdóttir 4, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 2, Sara Katrín Gunnarsdóttir 1, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 17, 40,5%.
Mörk Fram: Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir 6, Lena Margrét Valdimarsdóttir 6/4, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Harpa María Friðgeirsdóttir 2, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 1, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 8, 26,7% – Ethel Gyða Bjarnasen 0.
Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Olís kvenna: Úrslitakeppni, leikjadagskrá