- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Afurelding staðfestir brottför Stefáns

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur staðfest brottför Stefáns Árnarsonar, þjálfara meistaraflokks karla, í tilkynningu á samfélagsmiðlum. Stefáni er þakkað fyrir samstarfið. Hann tók við þjálfun meistaraflokks Aftureldingar fyrir ári en hafði áður verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og þjálfari 3. flokks í þrjú ár á undan. Ekki kemur fram hver tekur við af Stefáni en eins og handbolti.is sagði frá í morgun þykir Hrannar Guðmundsson fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar koma sterklega til álita.


„Á tíma Stefáns hjá Aftureldingu hefur félagið náð góðum árangri í yngri flokkum og meistaraflokki. Meistaraflokkur karla varð bikarmeistari árið 2023, spilaði til undanúrslita á Íslandsmótinu 2023 og 2025 og fór alla leið í úrslitaeinvígið árið 2024. Þriðji flokkur karla varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur verið í fremstu röð um árabil.

Þá hefur Stefán unnið mikið og gott starf í þróun yngri leikmanna þar sem margir uppaldir leikmenn hafa stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki og gert sig gildandi í Olísdeildinni, auk þess sem fjöldi uppaldra leikmanna hefur skapað sér sess í yngri landsliðum Íslands,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar sem lesa má í heild hér fyrir neðan augýsinguna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -