- Auglýsing -
Ágústa Tanja Jóhannsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til ársins 2028. Tanja, sem verður 19 ára í haust, er mjög efnilegur markvörður sem leikið hefur með meistaraflokki í þrjú tímabil og tekið miklum framförum á þeim tíma.
Tanja hefur verið í yngri landsliðum kvenna ásamt því að vera kölluð inn á æfingar hjá A-landsliði kvenna síðasta vetur.
Síðasta vetur lék Tanja stórt hlutverk hjá meistaraflokki og varði 187 skot í 24 leikjum með meðaltals markvörslu upp á 32,1%. Handknattleiksdeild Selfoss fagnar mjög þessum nýja samningi og er spennt fyrir að sjá Tönju vaxa og dafna áfram í Selfoss treyjunni næstu árin.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -