- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ákafi Hauka fleytti þeim í úrslit í 10. sinn – sóknarleikurinn brást FH

- Auglýsing -

Haukar leika til úrslita í bikarkeppni HSÍ í karlaflokki í tíunda sinn á laugardaginn. Þeir unnu sanngjarnan sigur á FH, 25:21, í undanúrslitum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Staðan var 11:9 fyrir Hauka að loknum fyrri hálfleik.

Troðfullt var í keppnishöllinni þegar flautað var til leiks. Haukar gáfu tóninn strax með mikilli ákefð. Þeir skoruðu fjögur af fyrstu fimm mörkum leiksins. Varnarleikurinn var öflugur og tókst að brjóta sóknarmenn FH á bak aftur. Sóknarleikurinn náði aldrei takti hjá FH-ingum. Þeir voru undir, 4:7, þegar 13 mínútur voru liðnar. Þá tóku við 10 mínútur þar sem FH náði að jafna metin, 8:8. Haukar voru ákveðnir og náðu að spyrna sér frá FH-ingum fyrir hálfleikshléið.

Daníel Freyr Andrésson hélt FH inni í leiknum í fyrri hálfleik með 11 varin skot, 50%. Þegar hann náði sér ekki á strik í upphafi síðari hálfleiks komust Haukar fimm mörkum yfir, 14:9. Við það forskot voru FH-ingar að glíma allt til leiksloka.

Ákafinn var áfram fyrir hendi í leik Hauka, jafnt í vörn sem sókn. Sóknarleikur FH var aldrei sannfærandi, með aðeins Garðar Inga Sindrason og Ómar Darra Sigurgeirsson í aðalhlutverkum. Aðrir voru slakir, ekki síst hægri vængurinn sem var alveg lamaður.

Freyr Aronsson átti stórleik með Haukum. Þessi 18 ára piltur var besti leikmaður vallarins með sjö mörk og 10 sköpuð færi. Ólafur Ægir Ólafsson var einnig frábær auk Grétars Ara Guðjónssonar markvarðar sem varði jafnt og þétt allan leikinn.


Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 7, Garðar Ingi Sindrason 6/3, Jón Bjarni Ólafsson 5, Jakob Martin Ásgeirsson 1, Einar Örn Sindrason 1, Birgir Már Birgisson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 11/1, 39,3% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 6, 46,2%.

Mörk Hauka: Ólafur Ægir Ólafsson 7, Freyr Aronsson 7/3, (10 sköpuð færi), Össur Haraldsson 5, Skarphéðinn Ívar Einarsson 4, Hergeir Grímsson 1, Arnór Róbertsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 13/1, 38,2%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Handbolti.is er á Ásvöllum og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -