- Auglýsing -
Unglingalandsliðskonan Alexandra Ósk Viktorsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV og klæðist þar með búningi félagsins að minnsta kosti út leiktíðina vorið 2028.
Alexandra Ósk, sem leikur í hægra horni, er með þeim efnilegustu leikmönnum ÍBV og hefur átt sæti í yngri landsliðum Íslands í handbolta, þar sem hún hefur tekið þátt í verkefnum með U16, U18 og U20 ára landsliðum.

Alexandra Ósk hefur skorað 66 mörk í 16 leikjum ÍBV í Olísdeildinni á leiktíðinni.
„Hún sameinar metnað, vinnusemi og mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur og er mikilvægur hluti af framtíð ÍBV,“ segir í tilkynningu ÍBV.
- Auglýsing -



