- Auglýsing -
Amelía Laufey Miljevic hefur endurnýjað samning sinn við handknattleikslið HK sem leikur í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð.
Amelía er línumaður sem skoraði 58 mörk í 18 leikjum á síðasta tímabili. Síðustu ár hefur hún spilað stórt hlutverk í ungu liði HK, bæði jafnt í vörn sem sókn.
„Hún er föst fyrir, ákveðin og með keppnisskap sem sæmir sönnum HK-ingi,“ segir í tilkynningu félagsins.
HK hafnaði í öðru sæti Grill 66-deildar á síðustu leiktíð og tapaði síðan fyrir Aftureldingu í undanúrslitum umspila Olísdeildar.
- Auglýsing -