„Ég er virkilega glaður að þetta tókst hjá okkur og er um leið mjög stoltur af stelpunum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik þegar handbolti.is náðu aðeins á hann eftir sigurinn á Portúgal á Ásvöllum síðdegis. Sigurinn tryggði íslenska landsliðinu sæti í lokakeppni EM annað sinn í röð. Um leið er ljóst að kvennalandsliðið tekur þátt í fjórða stórmótinu í röð sem ekki hefur átt sér stað áður.
Lokakeppni EM fer fram í Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu, Tékklandi og Tyrklandi frá 3. til 20. desember. Dregið verður í riðla á fimmtudaginn.
„Erfiður riðill er að baki með sterkum andstæðingum. Á sama tíma hefur íslenska liðið tekið miklum breytingum. Þar af leiðandi er það stórt fyrir okkur að hafa náð að komast áfram,“ sagði Arnar en íslenska landsliðið er raðað efst þeirra fjögurra liða sem komust áfram af þeim sem höfnuðu í þriðja sæti riðlakeppninnar.
Eru að skrifa söguna
„Markmið okkar náðist um leið og stelpurnar eru að skrifa söguna með fjórða stórmóti kvennalandsliðsins í röð, nokkuð sem ekki hefur náðst áður. Það er sannarlega jákvætt að við séum að stimpla okkur inn á þennan hátt með ungan leikmannahóp og ekki mjög reyndan. Enginn vafi er á að við munum halda áfram að stíga framfaraskref. Þetta er flottur hópur metnaðargjarnra leikmanna. Í mínum huga er aðeins tilhlökkun að vinna með þeim áfram,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari við handbolta.is á Ásvöllum í kvöld.
Ísland á EM með glæsibrag – stórsigur á Portúgal
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.


