Viðar Símonarson fyrrverandi landsliðsþjálfari og landsliðsmaður í handknattleik lést 2. júní, 80 ára gamall. Vísir segir frá andláti Viðars í dag.
Viðar, fæddist 25. febrúar 1945. Hann lék með Haukum og síðar FH á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar og vann fjölda titla í handknattleik með félögunum. Einnig þjálfaði hann um árabil bæði hjá FH og Haukum auk lið fleiri félaga.
Árið 1975 var Viðar ráðinn landsliðsþjálfari og hætti þá að leika með landsliðinu. Stærsta verkefni Viðars á því ári sem hann þjálfað landsliðið var undirbúningur og þátttaka í undankeppni Ólympíuleikanna 1976. Eftir að Viðar lét af starfi landsliðsþjálfari tók hann á ný upp þráðinn með landsliðinu sem leikmaður.
Viðar tók þátt í HM 1970 í Frakklandi, HM 1974 í Austur-Þýskalandi og Ólympíuleikunum 1972. Síðasta stórmót Viðars með landsliðinu var B-heimsmeistaramótið í Austurríki 1977.
Viðar lék 104 landsleiki á árunum 1966-1977; skoraði 233 mörk, 26 leiki sem leikmaður Hauka og 78 sem leikmaður FH. Þá lék hann 2 b-landsleiki, skoraði 8 mörk í þeim.
Aðalstarf Viðars var íþróttakennsla. Hann var einnig þjálfari karla- og kvennaliði árum saman. M.a. stýrði hann Haukum til fyrsta sigurs félagsins í bikarkeppni karla 1980 og kvennaliði Stjörnunnar níu árum þegar lið félagsins vann bikarkeppninnar í fyrsta skipti.
Viðar verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 18. júní.