- Auglýsing -
Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, var allt í öllu hjá danska 1. deildarliðinu EH Aalborg í dag þegar það vann AGF Håndbold, 29:22, á útivelli í þriðju umferð deildarinnar. Álaborgarliðið var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11.
Andrea, sem gekk til liðs við EH Aalborg í sumar eftir fjögurra ára veru hjá Kristianstad í Noregi, var markahæst með sjö mörk. Einnig lét hún verulega til sín taka í vörninni og varð m.a. að súpa seyðið af því. Var Andreu tvisvar sinnum vísað af leikvelli.
EH Aalborg er í öðru sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki. Bjerringbro er efst með sex stig. Bertha Rut Harðardóttir og samherjar í Holstebro getað jafnað metin við Bjerringbro á morgun takist þeim að vinna Fjónbúana frá Gudme á útivelli.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.
- Auglýsing -