- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andri Snær tekur við þjálfun KA

Andri Snær Stefánsson nýráðinn þjálfari karlalands KA. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs KA í Olísdeild karla. Hann tekur við af Halldóri Stefáni Haraldssyni sem hætti í vor eftir tveggja ára starf. Andri Snær var aðstoðarþjálfari KA-liðsins á síðustu leiktíð og ætti þar af leiðandi að vera öllum hnútum kunnugur.

Margfaldur meistari

Andri Snær hefur lengi þjálfað hjá KA fyrir utan að hafa leikið með félaginu um árabil. Þekktastur er hann fyrir tíma sinn með meistaraflokk KA/Þórs er hann hampaði öllum bikurum sem í boði voru eru þegar kvennalið KA/Þórs stóð uppi sem Íslands-, bikar- og deildarmeistari 2021 auk þess að vera meistari meistaranna.

Þjálfarar – helstu breytingar 2025

Andri Snær í ham á hliðarlínunni. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Á fjórða hundrað leikir

Andri Snær er KA maður í húð og hár en hann hóf að leika fyrir meistaraflokk KA árið 2003 og lék með liðinu nær samfleytt uns hann lagði skóna á hilluna árið 2021. Samtals lék hann 166 leiki fyrir KA og var fyrirliði liðsins í 85 leikjum. Þar á milli lék hann með sameiginlegu liði KA og Þórs, Akureyri handboltafélag, á árunum 2006 til 2017 og er hann leikjahæsti leikmaður í sögu Akureyrar með 222 leiki og flesta þeirra sem fyrirliði.

„Býr yfir mikilli þekkingu og metnaði“

„Við erum afar spennt fyrir því að Andri Snær taki við keflinu,“ segir Jón Heiðar Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar KA í tilkynningu. „Hann býr yfir mikilli þekkingu og metnaði, og við erum sannfærð um að hann sé rétti maðurinn til að leiða liðið áfram. Andri er gríðarlega öflugur þjálfari og við treystum honum fullkomlega til að ná fram því besta úr leikmannahópnum.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -