- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Anna Katrín hjá Aftureldingu fram til ársins 2027

Anna Katrín Bjarkadóttir, í opnu færi í leik með Aftureldingu. Ljósmynd/Raggi Óla
- Auglýsing -

Anna Katrín Bjarkadóttir hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu til ársins 2027 eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Aftureldingu.

Anna Katrín er uppalinn hjá Aftureldingu og er ein af lykilmönnum meistaraflokks kvenna. Hún hefur ekki langt að sækja handknattleikshæfileikana en faðir hennar, Bjarki Sigurðsson er þrautreyndur handknattleiksmaður og landsliðsmaður á árum áður. Anna Katrín hefur skoraði 30 mörk í 12 leikjum Grill 66-deildarinnar í vetur.


Afturelding er í öðru sæti Grill 66-deildar kvenna eftir 12 umferðir með 17 stig.

„Anna Kartín er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur. Þetta eru mikil gleðitíðindi en meistaraflokkur kvenna heimsækir Berserki klukkan 20:30 í kvöld og þar verður Anna Katrín í eldlínunni,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -