- Auglýsing -
Anna Lára Davíðsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, mun ekkert leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils vegna bakmeiðsla. Spilaði hún raunar síðast um miðjan nóvember.
Handkastið greinir frá því að Anna Lára sé að glíma við brjósklos.
Arnar Daði Arnarsson aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og einn ritstjóra Handkastsins segir í samtali við miðilinn að brjósklos í baki Önnu Láru hafi versnað í HM-pásunni undir lok síðasta árs.
Hefur hún glímt við bakmeiðsli undanfarin ár og koma þau nú í veg fyrir að Anna Lára, sem er 25 ára fjölhæfur leikmaður, geti spilað meira á yfirstandandi tímabili.
- Auglýsing -


