- Auglýsing -
Anna María Aðalsteinsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2027. Anna, sem er uppalin í Breiðholtinu, er öflugur leikmaður á báðum helmingum vallarins og spilar bæði línu og horn.
Anna María skoraði m.a. sigurmarkið í oddaleiknum við Selfoss um sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildarinnar í vor.
ÍR hafnaði í fimmta sæti Olísdeildar í vetur og komst í fyrsta sinn í undanúrslit úrslitakeppni deildarinnar.
„Við ÍR-ingar erum afar ánægðir með að Anna María verði áfram á heimaslóðum næstu árin,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍR.
- Auglýsing -