Tveir leikmenn kvennaliðs HK, Anna Valdís Garðarsdóttir og Leandra Náttsól Salvamoser, hafa framlengt samninga sína við HK en liðið leikur í Grill 66-deildinni. HK hafnaði í 2. sæti deildarinnar í vor en féll úr leik í undanúrslitum í umspili Olísdeildar kvenna.
Anna Valdís er skytta sem hefur síðustu ár fengið stærra hlutverk í ungu liði HK. Í vetur skorði hún 58 mörk í 16 leikjum en hún lét einnig að sér kveða í vörninni þar sem hún lék stórt hlutverk. Anna varð fyrir því óláni að slíta krossband í umspilinu við Aftureldingu í vor.
Leandra er örvhentur hornamaður sem er þrátt fyrir ungan aldur í lykilhlutverki í HK. Leandra hefur tekið mjög miklum framförum síðustu misseri en fyrir utan það að nýta færin sín vel þá er Leandra einnig sterkur varnarmaður og öflugur liðsfélagi. Leandra skoraði 69 mörk í 16 leikjum á liðnu tímabili.