Aðeins ein viðureign verður á milli liða úr Olísdeildinni í fyrstu umferð Powerade-bikarkeppni kvenna í handknattleik. Það er skýrt eftir að dregið var til fyrstu umferðar, 16-liða úrslita, laust eftir hádegið í dag. Um er að ræða viðureign Selfoss og Fram en liðin mættust einnig í fyrstu umferð keppninnar á síðasta ári í Sethöllinni á Selfossi. Heimaliðið hafði betur, 34:22.
Að öðru leyti drógust lið Grill 66-deildar kvenna gegn liðum úr Olísdeildinni.
Leikir 16-liða úrslita eiga að fara fram 4. og 5. nóvember.
Eftirtalin lið mætast:
Víkingur – Fjölnir.
HK – ÍBV.
KA/Þór – Stjarnan.
Selfoss – Fram.
FH – Grótta.
Afturelding – ÍR.
Tvö lið sitja hjá: Valur, Íslands-, bikar- og deildarmeistarar og Haukar sem taka þátt í Evrópubikarkeppninni.