Luca Witzke tryggði Þjóðverjum sigur á Ólympíumeisturum Frakka með marki á síðustu sekúndu í vináttulandsleik í Wetzlar í Þýskalandi í kvöld, 35:34. Frakkar voru fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:14. Þetta var síðasti leikur beggja liða áður en átökin hefjast á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu á fimmtudaginn.
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu geta alltént farið af stað fullir sjálfstrausts á Evrópumótið. Miklar breytingar hafa orðið á þýska landsliðinu frá Ólympíuleikunum í sumar og því gerðar hæfilegar væntingar til þess á Evrópumótinu.
Kai Häfner var markahæstur í þýska liðinu með átta mörk. Samherji hans hjá Melsungen, Julius Kühn, var næstur með fimm mörk.
Þýskaland vann Sviss í vináttulandsleik á föstudagskvöldi með fjögurra marka mun, 30:26.
Þýska landsliðið leikur í riðli með landsliðum Austurríki, Hvíta-Rússlands og Póllands sem leikinn verður í Bratislava.
Frakkar verða í C-riðli með Serbum, Króötum og Úkraínumönnum. Leikið verður í Pick Arena, nýrri og glæsilegri keppnihöll í Szeged í Ungverjalandi.
- Arnór færist nær sæti í undanúrslitum
- Oddaleikur hjá Andreu og Díönu Dögg
- Selfyssingurinn fer frá Svíþjóð til Noregs
- Komdu í Flensborg – íþróttaafrekssvið
- Landsliðskonan er í úrvalsliðinu í Noregi