- Auglýsing -
Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru á leiðinni til Finnlands þar sem þeir eiga fyrir höndum að dæma viðureign Finnlands og Svartfjallalands í forkeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla í Vantaa, skammt utan við Helsinki á morgun.
Um er að ræða fyrri viðureign landsliðanna í forkeppninni. Síðari leikurinn fer fram í Podgorica á sunnudaginn. Samanlagður sigurvegari í leikjunum tveimur mætir Slóvenum í umspilsleikjum fyrir HM eftir miðjan maí.
- Auglýsing -




