Ungverska félagið Pick Szeged hefur tilkynnt um komu Marko Eklemovic frá Györi ETE-UNI FKC í sumar. Eklemovic er aðeins 18 ára gamall leikstjórnandi en er þrátt fyrir ungan aldur þegar orðinn lykilmaður hjá Györi og er hugsaður sem arftaki Janusar Daða Smárasonar til framtíðar.
Janus Daði gengur til liðs við FC Barcelona í sumar og var Szeged því í leit að leikstjórnanda. Eklemovic skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Ekki hægt að hafna því að leika með Barcelona
Hann mun fyrst um sinn leika áfram með Györi að láni frá Szeged. Faðir Eklemovic, Nikola, lék einnig með Szeged á sínum tíma, frá 1999 til 2004.
Eklemovic þykir mjög mikið efni enda spilaði hann sína fyrstu leiki í ungversku efstu deildinni og í Evrópudeildinni fyrir MOL Tatabánya aðeins 15 ára gamall.



