- Auglýsing -
Ari Pétur Eiríksson hefur undirritað nýjan tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu.
Ari Pétur er 23 ára gamall, er örvhentur og leikur sem skytta. Hann lék sinn fyrsta leik tímabilið 2018-2019 og er á sínu áttunda leiktímabili með Seltjarnarnesliðinu. Hann hefur samtals leikið 150 leiki fyrir Gróttu.
Í vetur hefur Ari skorað 25 mörk í Grill 66 deild karla með Gróttuliðinu. Hann lék með flestum yngri landsliðum Íslands.
„Það eru gleðifréttir að Ari verði áfram í herbúðum félagsins enda útsjónarsamur og öflugur leikmaður,“ segir í tilkynningu Gróttu.
- Auglýsing -



