Arna Karitas Eiríksdóttir hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Vals sem gildir fram á sumarið 2028. Hún er fimmta unga og efnilega handknattleikskonan sem skrifar undir nýjan samning til lengri tíma við lið Íslands- og deildarmeistaranna á nokkrum dögum.
„Arna, sem er nýorðin 18 ára er mjög efnilegur leikmaður sem leikur sem leikstjórnandi í sókn og bakvörður og horn í vörn. Hún hefur mikinn og góðan leikskilning og því gríðarlega öflug í að stýra sóknarleiknum.
Arna hefur verið í stærra og stærra hlutverki hjá meistaraflokki í ár og staðið sig frábærlega á keppnistímabilinu. Hún hefur verið lykilmanneskja í yngri landsliðum Íslands í sínum aldri undanfarin ár. Það verður gaman að fylgjast með Örnu taka næstu skref á sínum ferli á komandi árum í Valstreyjunni,“ segir í tilkynningu frá Val.
Áfram er penninn á lofti á Hlíðarenda
Ásrún Inga skrifar undir samning til ársins 2028
Guðrún skrifar undir á Hlíðarenda