- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

FH gerði Gróttu skráveifu

- Auglýsing -

FH gerði Gróttu skráveifu í toppbaráttu Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í kvöld. Skráveifu sem getur reynst Gróttuliðinu slæm í kapphlaupinu við HK um efsta sæti deildarinnar á endasprettinum. FH vann viðureignina við Gróttu með einu marki, 25:24. Thelma Dögg Einarsdóttir skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Með sigrinum tryggði FH sér sæti í umspili Olísdeildar.


Þar með hefur HK endurheimt efsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir með 34 stig en Grótta er með 32 stig. Aðeins eitt lið fer beint upp í Olísdeild. Liðið sem hafnar í öðru sæti verður að gera sér að góðu að þræða nálarauga umspilsins.


HK lagði Val 2 fyrr í vikunni, 31:24. Áður en þá viðureign kom var Grótta í efsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og HK en hafði betri stöðu í innbyrðis viðureignum liðanna.

FH-liðið, sem situr í fjórða sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir Gróttu, var sterkara liðið lengst af viðureignarinnar við Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. M.a. var Hafnarfjarðarliðið sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12. Saman dró með liðunum á lokakaflanum og skoraði Grótta m.a. fimm af síðustu átta mörkunum. Það dugði ekki og FH fór með bæði stigin heim í Kaplakrika.


Mörk Gróttu: Katrín S. Scheving Thorsteinsson 9, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 5, Ída Margrét Stefánsdóttir 4, Edda Steingrímsdóttir 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2, Elísabet Ása Einarsdóttir 1, Svandís Birgisdóttir 1.
Varin skot: Anna Karólína Ingadóttir 7, Andrea Gunnlaugsdóttir 4.

Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 7, Telma Medos 5, Eva Guðrúnardóttir Long 4, Elísa Björt Ágústsdóttir 3, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 3.
Varin skot: Szonja Szöke 16.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -