Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik tilkynnir í dag hvaða konur hann hefur valið til þess að taka þátt í tveimur síðustu viðureignum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins, annars vegar gegn Færeyingum ytra 8. apríl og hins vegar við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl. Leikirnir eru sérlega mikilvægir þar sem íslenska landsliðið stendur á barmi þess að komast áfram eða falla úr leik í kapphlaupinu um þátttöku í lokakeppni EM sem fram fer í desember.
Til stóð að kynna landsliðið á blaðamannafundi klukkan 12.30. Fundinum var seinkað um hálftíma í gærkvöld og hefst klukkan 13 í fundarsal í Arionbanka í Borgartúni. Ekki kemur fram í tilkynningu hvort streymt verður frá fundinum.
Stöðuna í riðlunum er að finna hér fyrir neðan:
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
HSÍ stendur fyrir hópferð til Færeyja á viðureign landsliða Íslands og Færeyja. Um er að ræða einnar nætur pakkaferð. Farið verður út á leikdag, 8. apríl, og komið heim daginn eftir.
Flogið verður með Icelandair beint til Færeyja 8. apríl, miði á Færeyjar-Ísland, gist í eina nótt á Djurhuus Hotel og flogið til baka í beinu flugi 9. apríl.
Rútuferð til og frá flugvelli í Færeyjum er innifalið.
Verð er 125.000 kr. en möguleiki er að framlengja ferð.
Nánari upplýsingar veitir Daníel Franz á netfanginu [email protected].
Færeyska landsliðið sem mætir Íslandi – Stefnt á hópferð til Þórshafnar



