Arnór Atlason þjálfari TTH Holstebro var kjörinn þjálfari ársins í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki. Að valinu stendur danska handknattleikssambandið en þjálfarar í úrvalsdeildunum tóku þátt í kjörinu auk landsliðsþjálfara Danmerkur. Arnór, sem einnig er aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, er að ljúka sínu öðru keppnistímabili með TTH Holstebro.
Arnór hefur stokkað upp lið TTH Holstebro sem hafði verið í mesta basli áður en hann tók við. Á yfirstandandi leiktíð komst TTH í undanúrslit um danska meistaratitilinn og leikur í dag öðru sinni við GOG um bronsverðlaunin í úrslitakeppninni.
Í tilkynningu kemur fram að mjótt hafi verið á mununum í kjörinu. Jacob Vinholt, Grindsted GIF Håndbold, Mathias Albrektsen, Skive fH, og Niels Agesen, Mors-Thy Håndbold hafi verið skammt á eftir Arnóri í kjörinu
Aðalþjálfari í fyrsta sinn
Starfið hjá TTH Holstebro er það fyrsta hjá Arnóri sem aðalþjálfari félagsliðs. Hann hafði verið aðstoðarþjálfari Aalborg Håndbold í fimm ár áður en hann færði sig um set á Jótlandi. Einnig var Arnór þjálfari 19 til 21 árs karlalandsliða Danmerkur um árabil eftir að ferlinum sem handknattleiksmaður lauk 2018 og þangað til hann tók við þjálfun TTH Holstebro.
Ole Gustav Gjekstad þjálfari deildarmeistara og silfurliðs Meistaradeildarinnar, Odense Håndbold, var kjörinn þjálfari ársins í flokki kvennaliða. Gjekstad hættir hjá Odense eftir leiktíðina og einbeitir sér að þjálfun norska kvennalandsliðsins en hann var ráðinn í stað Þóris Hergeirssonar.
Uppfært: GOG vann TTH Holstebro í dag, 33:32. Liðin hafa þar með unnið einn leik hvort og mætast í oddaleik á heimavelli GOG á Fjóni á miðvikudaginn, 11. júní.