- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnór stýrði sínum mönnum til sigurs í fyrsta bronsleiknum

Arnór Atlason þjálfari TTH Holstebro getur verið ánægður þessa dagana. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro lögðu GOG í fyrsta leik liðanna um þriðja sætið í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 30:29. Næst mætast liðin í Holstebro á laugardaginn og vinni heimaliðið þá viðureign koma bronsverðlaun í hlut leikmanna liðsins. Snúi GOG við blaðinu mætast liðin í oddaleik á heimavelli GOG í Svendborg á Fjóni.


Holstebro-liðið lagði grunn að sigrinum með afar öflugum fyrri hálfleik þegar liðið fékk aðeins á sig 10 mörk en tókst á móti að skora 17 mörk.

Leikmenn GOG sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik. Þeim tókst þó aldrei að jafna metin. Minnstur var munurinn eitt mark einni mínútu fyrir leikslok.

Í kvöld mætast Aalborg Håndbold og Skjern í fyrsta úrslitaleiknum um meistaratitilinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -