Arnór Þór Gunnarsson, þjálfari Bergischer HC, stýrði sínum mönnum til afar mikilvægs sigurs í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld. Bergischer heimsótti Einar Þorstein Ólafsson og félaga í HSV Hamburg og vann með minnsta mun, 35:34.
Bergischer er eftir sigurinn áfram í 15. sæti af 18 liðum en nú með 14 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Hamburg siglir lygnan sjó í 11. sæti með 21 stig.
Arnór Þór skrifaði í síðasta mánuði undir nýjan samning við Bergischer sem gildir til sumarsins 2028, en liðið er nýliði í 1. deildinni eftir að hann stýrði því til sigurs í B-deildinni á síðasta tímabili.
Um sjötta sigur Bergischer í deildinni var að ræða á yfirstandandi tímabili. Átta umferðir eru óleiknar í henni og Bergischer því síður en svo búið að bjarga sér frá falli þrátt fyrir góðan sigur í kvöld.



