Aron Pálmarsson kemur inn í 16-manna landsliðshópinn sem leikur við Kúbu í kvöld í annarri umferð G-riðils heimsmeistaramótsins. Aron varð gjaldgengur með íslenska liðinu í dag. Í hans stað fellur Haukur Þrastarson úr keppnishópnum og verður ásamt Einari Þorsteini Ólafssyni í áhorfendastúkunni.
Einar Þorsteinn var einnig utan liðsins í fyrrakvöld gegn Grænhöfðaeyjum.
Viðureign Íslands og Kúbu á HM karla hefst í klukkan 19.30 í Zagreb Arena. Handbolti.is verður með textalýsingu frá leiknum.
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (276/24).
Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock (63/1).
Aðrir leikmenn:
Aron Pálmarsson, Veszprém (177/674).
Bjarki Már Elísson, Veszprém (121/408).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (53/113).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (82/193).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (63/145).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (89/151).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (45/136).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (19/55).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (79/218).
Sveinn Jóhannsson, Kolstad (15/24).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (39/40).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (62/178).
Ýmir Örn Gíslason, Frisch Auf Göppingen (95/40).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (8/14).