Alls eru 18 lið af 24 búin að tryggja sér sæti á EM 2026 í handknattleik kvenna sem fer fram í lok ársins í fimm löndum; Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi.
Lokaumferð undankeppninnar fer öll fram á sunnudaginn þar sem Ísland freistar þess að vera ein af sex þjóðum sem tryggir síðustu farseðlana á Evrópumótið.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
Óvenju margar þjóðir, átta, voru þegar búnar að tryggja sæti sín á mótinu sem kemur til vegna þess að gestgjafarnir eru fimm og efstu þrjár þjóðirnar á EM 2024 fara beint á mótið án þess að þurfa að hafa áhyggjur af undankeppni.
Þrjár efstu þjóðirnar á EM 2024 voru Noregur, Danmörk og Ungverjaland. Svíþjóð, Spánn, Holland, Þýskaland, Frakkland, Slóvenía, Króatía, Sviss, Svartfjallaland og Færeyjar eru þá öll búin að tryggja sæti sín í gegnum undankeppnina.
Úrslitaleikur hjá kvennalandsliðinu á sunnudaginn
Ísland mætir Portúgal í úrslitaleik um sæti á EM 2026 á Ásvöllum á sunnudag. Ásamt þeim tveimur eiga fjöldi þjóða möguleika á því að ná sætunum sex. Þær eru Finnland, Ítalía, Bosnía og Hersegóvína, Norður-Makedónía, Belgía, Serbía, Úkraína, Austurríki og Grikkland.
Þjóðirnar 18 sem eru komnar á EM 2026:
Tékkland (gestgjafi),
Slóvakía (gestgjafi),
Pólland (gestgjafi),
Rúmenía (gestgjafi),
Tyrkland (gestgjafi),
Noregur (árangur á EM 2024),
Danmörk (árangur á EM 2024),
Ungverjaland (árangur á EM 2024),
Svíþjóð (undankeppni),
Spánn (undankeppni),
Holland (undankeppni),
Þýskaland (undankeppni),
Frakkland (undankeppni),
Slóvenía (undankeppni),
Króatía (undankeppni),
Sviss (undankeppni),
Svartfjallaland (undankeppni),
Færeyjar (undankeppni).
Dregið verður í riðla lokakeppninnar í Katowice í Póllandi fimmtudaginn 16. apríl.



