- Auglýsing -
- Auglýsing -

Atli kemur inn í þjálfarateymi Selfoss

Atli Kristinsson aðstoðarþjálfari karlaliðs Selfoss. Ljósmynd/UMF Selfoss
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur samið við Atla Kristinsson um að ganga inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. Hann mun verða Carlos Martin Santos til halds og trausts með meistaraflokk karla sem og 3. flokk auk U-liðsins.

Atli er vel þekktur innan handboltafjölskyldunnar hér á landi enda einn af tryggari handboltamönnum sem Selfoss hefur alið af sér. Hann lék á sínum ferli 221 leik fyrir meistaraflokk Selfoss og skoraði í þeim 885 mörk. Þá er hann markahæsti leikmaður í sögu ÍF Mílan.

Atli hefur verið viðloðinn starf deildarinnar með ýmsum hætti um árabil, setið í stjórn, þjálfað yngri flokka og komið að ýmsum viðburðum og þar með hokinn reynslu.

„Ég er spenntur fyrir þessu verkefni sem komið er í gang hér á Selfossi. Margir ungir efnilegir strákar í bland við leikmenn með smá reynslu. Ég mun reyna gera mitt besta í að kenna þeim eitthvað af því sem að ég kann og þá á ég við ekki bara að skjóta á markið. Mér líst vel á Carlos og hans hugmyndir og hef fulla trú á að hann geti leitt liðið þangað sem það á heima,“ er m.a. haft eftir Atla í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss í dag.

Karlalið Selfoss leikur í Grill 66-deild á næsta keppnistímabili. Fyrsti leikur tímabilsins verður 21. september.

Þjálfarar – helstu breytingar 2024

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -