Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe vann sinn fyrsta leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld í Chambray í Frakklandi í kvöld gegn Chambray Touraine Handball, 31:27. Sigurinn nægir Blomberg-Lippe ekki til þess að leika sama leikinn og fyrir ári, þ.e. að komast áfram úr riðlakeppninni. Liðið situr í þriðja sæti fyrir lokaumferðina eftir viku með þrjú stig en Nykøbing Falster Håndbold og MOL Esztergom hafa þegar tryggt sér tvö efstu sætið riðilsins.
Elín Rósa Magnúsdóttir var markahæst íslensku landsliðskvennanna þriggja hjá Blomberg-Lippe í leiknum í Frakklandi. Hún skoraði fjögur mörk og átti fjórar stoðsendingar auk þess að fiska eitt vítakast.
Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk, gaf þrjár stoðsendingar, fiskaði eitt vítakast, stal boltanum einu sinni og varði eitt skot í vörninni.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark, gaf tvær stoðsendingar, skapaði eitt marktækifæri og vann andstæðing einu sinni af leikvelli.
Staðan í riðlinum:



