- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Átján lið búin að tryggja farseðilinn á EM 2026 – bætist Ísland í hópinn?

Alls eru 18 lið af 24 búin að tryggja sér sæti á EM 2026 í handknattleik kvenna sem fer fram í lok ársins í fimm löndum; Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi. Lokaumferð undankeppninnar fer öll fram á sunnudaginn...

Susan heldur kyrru fyrir í Mosfellsbæ

Susan Ines Barinas Gamboa, leikmaður Aftureldingar, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Susan, sem er frá Venesúela, hefur leikið með liði Aftureldingar undanfarin sex ár. Hún er 37 ára gömul og er nú samningsbundin félaginu til sumarsins...

Dagskráin: Annar Hafnarfjarðarslagur á Ásvöllum

Einn leikur er á dagskrá í úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. Haukar fá nágranna sína í FH í heimsókn í Kuehne+Nagel höllina á Ásvöllum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Staðan er 1:0, FH í vil. Vinna þarf þrjá leiki...

Myndskeið: Dæmdi sjálfan sig af velli

Magnus Saugstrup, línumaður SC Magdeburg og danska landsliðsins, vakti nokkra athygli fyrir brot sitt í sigri liðsins á Frisch Auf! Göppingen í þýsku 1. deildinni á sunnudag. Þar tilkynnti hann dómurum leiksins sjálfur að hann ætti skilið tveggja mínútna...
- Auglýsing-

Arnar Freyr sagður fara til Flensborgar

Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson gengur til liðs við þýska félagið SG Flensburg-Handewitt í sumar. Handkastið greinir frá og kveðst hafa heimildir fyrir því að hann verði tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins á næstu dögum. Samningur Arnars Freys við þýska...

Tveir efnilegir ÍR-ingar æfa hjá Guðjóni Val

Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson, ungir og efnilegir leikmenn ÍR, æfa um þessar mundir með þýska liðinu VfL Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar. Í tilkynningu á Facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍR segir að Jökull og Patrekur Smári æfi með...

Leikjum Íslendingaliðsins seinkað vegna fótboltaleikja

Tveimur leikjum Íslendingaliðs SC Magdeburg í þýsku 1. deildinni hefur verið seinkað, báðum vegna knattspyrnuleikja sem fara fram sömu daga. Magdeburg, sem Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson leika með, átti að mæta TVB Stuttgart í...

Aðeins Gidsel stendur Hauki framar

Haukur Þrastarson hefur átt frábært fyrsta tímabil með liði sínu Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni. Haukur er stoðsendingahæstur í deildinni með 149 stoðsendingar í 27 leikjum. Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá SC Magdeburg er næst stoðsendingahæstur með 126 í...
- Auglýsing-

„Hef verið frekar niðurdregin“

Norska landsliðskonan Nora Mørk hefur ekki náð sér fyllilega á strik með liði sínu Team Esbjerg á síðari hluta tímabilsins. Smávægileg meiðsli auk tíðra veikinda hafa verið að valda Mørk vandræðum í vor. „Ég hef smitast af umgangspestum og streptókokkum,...

Viggó og Andri fá öflugan liðsauka

Þýska félagið HC Erlangen hefur samið við franska markvörðinn Rubens Pierre um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Pierre kemur frá Tremblay Handball í Frakklandi, þar sem hann er með 33 prósent hlutfalls markvörslu á tímabilinu,...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -