- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Blekið þornar vart í Úlfarsárdal

Ekkert fararsnið er á leikmönnum karlaliðs Fram enda hefur handknattleiksdeild félagsins staðið í ströngu við að framlengja samninga fjölda þeirra að undanförnu. Erlendur Guðmundsson hefur bæst í hóp þeirra og er búinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir...

Dagskráin: KA og Valur mætast öðru sinni

Einn leikur er á dagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. KA og Valur mætast í öðrum leik liðanna í undanúrslitum í KA heimilinu á Akureyri. Valur er 1:0 yfir í einvíginu eftir stórsigur í fyrsta leik liðanna í N1-höllinni...

Segir Elínu Klöru of góða fyrir sænsku úrvalsdeildina

Elín Klara Þorkelsdóttir átti frábært tímabil í sænsku úrvalsdeildinni, sínu fyrsta í atvinnumennsku, og er í úrvalsliði sænska miðilsins Handbollskanalen. Elín Klara skoraði 141 mark og gaf 34 stoðsendingar í 22 leikjum fyrir IK Sävehof, sem varð deildarmeistari. Senn hefst...

Pytlick-lausir liðsmenn Flensburg lögðu Minden

SG Flensburg-Handewitt tyllti sér í annað sæti þýsku 1. deildarinnar, að minnsta kosti tímabundið, með því að leggja GWD Minden nokkuð þægilega að velli, 35:31, á heimavelli í kvöld. Flensburg er með 41 stig í öðru sæti, fimm stigum á...
- Auglýsing-

Elmar og félagar eygja enn von

Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í HSG Nordhorn-Lingen unnu nauman heimasigur á HC Elbflorenz 2006, 32:31, í þýsku B-deildinni í kvöld. Nordhorn eygir ennþá smávægilega von um að komast upp í efstu deild. Nordhorn er í sjötta sæti með 32...

Fjölnir kom Stjörnunni í erfið mál

Fjölnir gerði frábæra ferð í Heklu höllina í Garðabæ og lagði Stjörnuna að velli, 24:23, í fyrsta leik liðanna í umspili Olísdeildar karla um eitt sæti í deildinni. Stjarnan hafnaði í næstneðsta sæti Olísdeildarinnar og Fjölnir í sjötta sæti...

Tumi Steinn markahæstur er Alpla Hard tyllti sér á toppinn

Íslendingalið Alpla Hard, sem Hannes Jón Jónsson þjálfar, vann sterkan útisigur á Aon Fivers, 28:26, í efstu deild karla í Austurríki í kvöld. Með sigrinum tyllti Alpla Hard sér á topp deildarinnar. Alpla Hard er með 23 stig að loknum...

Íslendingaliðið skákaði Kiel

Íslendingalið MT Melsungen vann frækinn sigur á stórliði THW Kiel, 30:29, í þýsku 1. deildinni í handknattleik karla í kvöld. Melsungen fór með sigrinum upp í sjöunda sæti deildarinnar og er þar með 30 stig. Kiel hefur gengið illa að...
- Auglýsing-

Costa-feðgarnir til Flensburg?

Þýska félagið SG Flensburg-Handewitt er sagt vinna hörðum höndum að því að semja við bræðurna Kiko og Martim Costa auk föðurs þeirra, þjálfarans Ricardo. Feðgarnir eru allir samningsbundnir Sporting Lissabon til sumarsins 2030. Danska vefsíðan Rygtebørs og þýska síðan RT...

Arftaki Janusar Daða strax fundinn

Ungverska félagið Pick Szeged hefur tilkynnt um komu Marko Eklemovic frá Györi ETE-UNI FKC í sumar. Eklemovic er aðeins 18 ára gamall leikstjórnandi en er þrátt fyrir ungan aldur þegar orðinn lykilmaður hjá Györi og er hugsaður sem arftaki...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -