- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þremur ekki gerð frekari refsing

Aganefnd HSÍ fundar þessa dagana daglega ef þörf krefur á meðan úrslitakeppni Olísdeildar karla stendur yfir. Tveir leikmenn hlutu útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í fyrstu leikjum átta liða úrslitum úrslitakeppninnar og einn þjálfari hlaut útilokun. Róbert Sigurðarson...

Andri líklega ekki meira með

Andri Erlingsson, leikstjórnandi ÍBV, missti af síðasta leik liðsins og missir einnig af þeim næsta vegna meiðsla sem hann glímir nú við. Óttast er að hann spili ekki meira með liðinu í úrslitakeppni Olísdeildarinnar. ÍBV er strax komið með bakið...

Myndasyrpa: Brosti hringinn eftir skot í andlitið

Mikael Appelgren, markvörður sænska landsliðsins, reyndist því íslenska óþægur ljár í þúfu þegar liðin mættust í tveimur vináttulandsleikjum í síðustu viku. Appelgren varði 18 skot í síðari leiknum í Kaplakrika, sem Svíþjóð vann 30:27, og varði níu skot er hann...

Mikið barnalán hjá besta liði heims

Kvennaliði Györi ETO KC gengur ekki einungis vel inni á vellinum, þar sem liðið er ríkjandi Evrópumeistari og ungverskur meistari og er að öðrum ólöstuðum sterkasta félagslið heims. Utan vallar er nefnilega mikið barnalán á meðal leikmanna liðsins. Danski miðillinn...
- Auglýsing-

Arnór vann gífurlega mikilvægan sigur

Arnór Þór Gunnarsson, þjálfari Bergischer HC, stýrði sínum mönnum til afar mikilvægs sigurs í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld. Bergischer heimsótti Einar Þorstein Ólafsson og félaga í HSV Hamburg og vann með minnsta mun, 35:34. Bergischer er eftir sigurinn...

Jón Þórarinn skellti í lás í fræknum sigri FH gegn Fram

Jón Þórarinn Þorsteinsson átti sannkallaðan stórleik í marki FH þegar liðið vann góðan sigur á Fram, 28:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. FH er 1:0 yfir í einvíginu, en vinna þarf...

Haukar fóru illa með Aftureldingu

Haukar unnu öruggan sigur á Aftureldingu, 34:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla um Íslandsmeistaratitilinn í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Haukar eru því komnir í 1:0 í einvíginu. Liðin mætast næst í Myntkaup höllinni...

Tvær sænskar goðsagnir láta staðar numið

Jamina Roberts og Nathalie Hagman, goðsagnir sænska landsliðsins, hafa báðar ákveðið að hætta að leika með liðinu eftir langa og farsæla landsliðsferla að loknum komandi landsleikjaglugga, þar sem Svíþjóð mætir Úkraínu og Litáen í næsta mánuði. Þetta kemur fram í...
- Auglýsing-

Chiseliov yfirgefur Þórsara

Igor Chiseliov, leikmaður Þórs á Akureyri, mun ekki spila áfram með liðinu á næsta tímabil. Samningur hans rennur út í sumar og verður ekki endurnýjaður. Jason Orri Geirsson, meðstjórnandi í stjórn handknattleiksdeildar Þórs, skýrði frá þessu í samtali við Handkastið. Chiseliov...

Janus Daði: „Líklega stærsta félag heims“

Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason er ansi spenntur fyrir því að ganga til liðs við spænska stórveldið Barcelona í sumar, þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning. Í dag var staðfest að Janus Daði fari frá ungverska félaginu Pick...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -