- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Nokkrar breytingar á sænska hópnum – sterkir leikmenn ekki til Íslands

Michael Apelgren, þjálfari sænska karlalandsliðsins, hefur neyðst til þess að gera nokkrar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Íslandi síðar í vikunni. Alls hafa þrír öflugir leikmenn þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Þeir eru Jonathan...

Ísak neyðist til að draga sig úr landsliðshópnum

Ísak Steinsson, markvörðurinn ungi hjá Drammen í Noregi, hefur neyðst til þess að draga sig úr íslenska A-landsliðshópnum fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Er hann að glíma við meiðsli og getur því ekki tekið þátt í...

Olís kvenna: Línur nokkuð skýrar en hart barist við botninn

Þegar tvær umferðir eru óleiknar í Olísdeild kvenna á tímabilinu eru línur orðnar ansi skýrar. Þó er ekki víst hvort Stjarnan eða Selfoss falli beint niður í Grill 66 deildina og hvort þeirra fer í umspil enda barátta liðanna...

Lykilmaður Alfreðs fer til Kiel

Justus Fischer, línu- og varnarmaðurinn sterki í liði Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, hefur samið við THW Kiel um að leika með liðinu frá og með sumrinu 2027. Fischer, sem er 23 ára gamall, vakti athygli fyrir vasklega framgöngu í þýska...
- Auglýsing-

Krabbameinið á bak og burt hjá Herrem

Þær miklu gleðifréttir bárust af norska reynsluboltanum Camillu Herrem í gær að hún væri laus við brjóstakrabbamein sem hún hefur glímt við frá síðasta sumri. Herrem, sem er 39 ára gömul, sneri þrátt fyrir krabbameinsgreininguna aftur á handboltavöllinn með liði...

Baldur Fritz markakóngur annað tímabilið í röð

Baldur Fritz Bjarnason, leikstjórnandi og stórskytta ÍR, er markakóngur Olísdeildar karla annað tímabilið í röð. Baldur Fritz tók ekki þátt í síðustu þremur leikjum ÍR vegna meiðsla. Liðið féll niður í Grill 66-deildina í gærkvöldi. Baldur Fritz, sem fer til...

Ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni karla – úrslitin hefjast 25. mars

Lokaumferð Olísdeildar karla fór fram í heild sinni í kvöld og er þar með ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn og mætir því HK sem náði áttunda og síðasta sætinu...

Orri Freyr lét til sín taka í Meistaradeildinni

Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon unnu nauman sigur á Dinamo Búkarest, 30:29, í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í Lissabon í kvöld. Orri Freyr lét til sín taka og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í...
- Auglýsing-

Ellefti tapleikur Stjörnunnar í röð – fer í umspil

Stjarnan tapaði ellefta leik sínum í Olísdeild karla í röð í þegar liðið beið ósigur gegn Fram, 24:26, í Heklu höllinni í Garðabæ í kvöld. Stjarnan hafnar þar með í ellefta sæti og fer í fjögurra liða umspil með...

ÍR féll og FH tryggði annað sætið

FH hafði örugglega betur gegn ÍR, 34:28, í lokaumferð Olísdeildar karla í Kaplakrika í kvöld. Þar með er ljóst að FH hafnar í öðru sæti deildarinnar og ÍR endar í neðsta sæti og er fallið niður í Grill 66...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -