- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Hátíðisdagur á Ísafirði – grannlið mætast í Úlfarsárdal

Þriðja umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með fimm leikjum. Hæst ber væntanlega fyrsti heimaleikur nýliða Harðar á Ísafirði í Olísdeildinni. Mikið verður um dýrðir í íþróttahúsinu Torfnesi enda hefur verið fagnað af minna tilefni en því...

Molakaffi: Einar, Sveinn, Strope, Adolfsson, Sveinn, Halldór, Steinunn, Júlíus, Marteinn, Einar

Einar Ingi Hrafnsson leikmaður Aftureldingar og Sveinn Brynjar Agnarsson leikmaður ÍR sluppu með áminningu á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudaginn Báðir fengu þeir rautt spjald fyrir grófan leik í leikjum annarrar umferðar Olísdeildar karla. Dómarar mátu brot beggja falla...

Myndskeið: Bjarki Már skoraði sín fyrstu mörk

Bjarki Már Elísson skoraði sín fyrstu mörk fyrir Veszprém í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í kvöld þegar liðið vann Porto örugglega í Porto með sjö marka mun, 35:28, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik,...

Kvöld Íslendinga í norska bikarnum

Íslendingar voru sigursælir í þriðju umferð norsku bikarkeppninnar í handknattleik. Þeir voru í eldlínunni með fimm félagsliðum sem öll unnu sína leiki. Segja má að það hafi verið íslenskt sigurkvöld í norska bikarnum. Úrslit og markaskorarar Levanger - Volda 23:30 (11:15).Rakel...
- Auglýsing-

„Get ekki endalaust tekið eitt ár í viðbót“

„Þegar ég fékk fimmtu sterasprautuna í mjöðmina í vor sagði læknirinn að sennilega væri kominn tími hjá mér til þess að hætta í handboltanum,“ sagði Martha Hermannsdóttir hin þrautreynda handknattleikskona á Akureyri sem ákvað fyrir nokkru að leggja handboltaskóna...

Kristinn framlengir dvölina hjá EB

Handknattleiksþjálfarinn Kristinn Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við færeyska handknattleiksfélagið Eiðis Bóltfelag (EB) til ársins 2024. Frá þessu er sagt á heimasíðu félagsins í dag. Kristinn tók við þjálfun hjá EB sumarið 2021 og stýrði kvennaliði félagsins sem nýliðum í...

Tinna stendur á milli stanganna hjá Gróttu

Tinna Húnbjörg Einarsdóttir, markvörður, hefur gengið til liðs við Gróttu í Grill66-deildinni. Hún er 28 ára gömul og er þrautreynd í markinu. Síðustu tvö ár hefur Tinna leikið með Stjörnunni en var þar áður hjá Haukum. Tinnu er ætlað að...

Snýst fyrst og fremst um vilja til framkvæmda

Guðmundur B. Ólafsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, sagði í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, það koma á óvart að framkvæmdum við þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir verði seinkað. Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var af tveimur ráðherrum og borgarstjóra í maí var stefnt...
- Auglýsing-

Molakaffi: Aron Hólm Ásgeir Snær, Satchwell, Norðberg, Halden í vanda

Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Aron Hólm Kristjánsson, skrifaði í gær undir nýjan samning við handknattleiksdeild Þórs. „Þótt Aron sé ungur að árum þá er hann einn reynslumesti leikmaður liðsins og okkur Þórsurum gríðarlega mikilvægur leikmaður,“ segir m.a. í tilkynningu Þórs í...

Rakel og Sigurjón kalla saman æfingahóp U17 ára landsliðs

Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón Friðbjörn Björnsson hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga hjá U17 ára landsliði kvenna í handknattleik dagana 28. september til 2. október. Hópinn skipa: Adela Jóhannsdóttir, Selfossi. Alexandra Ósk Viktorsdóttir, ÍBV Arna Karitas Eiríksdóttir, Val. Ágústa Rún Jónasdóttir, HK. Ágústa Tanja...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19313 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -