- Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Aron Hólm Kristjánsson, skrifaði í gær undir nýjan samning við handknattleiksdeild Þórs. „Þótt Aron sé ungur að árum þá er hann einn reynslumesti leikmaður liðsins og okkur Þórsurum gríðarlega mikilvægur leikmaður,“ segir m.a. í tilkynningu Þórs í gær. Fyrsti leikur Þórsarar í Grill66-deildinni verður í Höllinni á Akureyri á föstudaginn gegn Fjölni. Flautað verður til leiks klukkan 17.30.
- Ásgeir Snær Vignisson kom lítið við sögu í gær þegar Helsingborg tapaði naumlega á heimavelli Önnrereds HK, 29:28, í annarri umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla í gær. Helsingborg hefur tvö stig eftir tvo leiki.
- Tveir Færeyingar sem leika með félagsliðum hér á landi voru valdir í landsliðið í gær en framundan eru viðureignir hjá færeyska landsliðinu í undankeppni EM. Um er að ræða KA-mennina Nicholas Satchwell, markvörð, og Allan Norðberg. Athygli vekur að Elias Ellefsen á Skipagøtu er ekki í færeyska landsliðinu. Ástæðan fyrir fjarveru hans eru meiðsli.
- Þann 12. október mætir færeyska landsliðið Úkraínumönnum í Þýskalandi. Fjórum dögum síðar taka Færeyingar á móti Austurríkismönnum í Þórshöfn. Landslið Færeyja og Austurríkis hafa ekki mæst í mótsleik í karlaflokki í 38 ár.
- Norska úrvalsdeildarliðið í karlaflokki, Halden Topphåndball, er barmi gjaldþrots. Félagið er skuldum vafið og róa stjórnendur lífróður um þessar mundir. Þeir segja félagið hafa orðið af miklum tekjum í heimsfaraldri kórónuveiru og erfiðlega hafi gengið að vinna upp tekjutapið eftir að ástandið skánaði. Framtíð liðs félagsins skýrist væntanlega í næstu viku.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.
- Auglýsing -