- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hrafnhildur Ósk og Anna Úrsúla halda utan um B-landsliðið

HSÍ hefur ráðið Hrafnhildi Ósk Skúladóttur og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur í þjálfarateymi kvennalandsliðsins í handknattleik og verða þær með umsjón yfir B-landsliði kvenna ásamt Arnari Péturssyni landsliðsþjálfara og Ágústi Þór Jóhannssyni aðstoðarþjálfara. Hrafnhildur Ósk er leikjahæsta landsliðskona Íslands. Hún...

Þrír nýliðar valdir og þrír reyndir leikmenn ekki með

Arnar Pétursson, þjálfari A landslið kvenna í handknattleik hefur valið 19 leikmenn til æfinga vegna tveggja leikja í undankeppni EM 2022 í byrjun október. Þrír nýliðar eru í hópnum, Aldís Ásta Heimisdóttir, KA/Þór, Berglind Þorsteinsdóttir, HK, og Elísa Elíasdóttir,...

Dagskráin: Selfoss fær FH í heimsókn – Evrópuleikur

Einn leikur er á dagskrá í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. FH-ingar sækja liðsmenn Selfoss heim í Set-höllina á Selfossi. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Viðureignin er lokaleikur í fyrstu umferðar deildarinnar. Honum var frestað vegna þátttöku...

Hleypur á snærið hjá Kórdrengjum

Enn og aftur virðist hafa hlaupið á snærið hjá nýliðum Kórdrengja í Grill66-deild karla í handknattleik. Samkvæmt heimildum handbolta.is hefur markvörðurinn Birkir Fannar Bragason ákveðið að leika með liði Kórdrengja.Birkir Fannar lék fimm keppnistímabil með FH áður en hann...
- Auglýsing-

Grill66-deild karla – 1. umferð, uppgjör

Fyrsta umferð Grill66-deildar karla fór fram á síðasta föstudag, laugardag og sunnudag. Úrslit leikjanna voru sem hér segir: Þór Ak. - Haukar U 27:25 (13:12).Mörk Þórs: Viðar Ernir Reimarsson 7, Arnór Þorri Þorsteinsson 5, Ágúst Örn Vilbergsson 3, Aron Hólm...

Molakaffi: Ellen, Hekla, Mrkva, Johannesson, flakk á Ostroushko

Ellen Karlsdóttir og Hekla Daðadóttir dæmdu í fyrsta sinn viðureign í Olísdeild kvenna á sunnudaginn þegar þeim fórst vel úr hendi að halda uppi röð og reglu í viðureign HK og Stjörnunnar í annarri umferð. Ellen og Hekla...

Enginn leikja kvennaliðanna fer fram á heimavelli

Enginn af leikjum íslensku liðanna í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik fer fram hér á landi. Þrjú íslensk lið taka þátt, Íslandsmeistarar KA/Þórs, Valur og ÍBV. Öll hafa þau tekið þá ákvörðun að selja heimaleikjaréttinn og leika ytra. Viðureignirnar...

Grill66-deild kvenna – 2. umferð, uppgjör

Tveimur umferðum er lokið í Grill66-deild kvenna, alltént hjá flestum liðum deildarinnar. Síðustu leikir voru rétt fyrir og um nýliðna helgi. Úrslit þeirra voru sem hér segir: Grótta - Valur U 25:19 (14:5).Mörk Gróttu: Katrín Anna Ásmundsdóttir 7, Nína Líf...
- Auglýsing-

EHF sektar Snorra Stein

Aganefnd Handknattleikssambands Evrópu hefur sektað Snorra Stein Guðjónsson þjálfara karlaliðs Vals um 1.000 evrur, jafnvirði 151.000 króna fyrir framkomu í garð dómara og eftirlitsmanns eftir viðureign Vals og Lemgo í annarri umferð Evrópdeildarinnar í Origohöllinni á síðasta þriðjudag. Aganefndin segir...

Olsson fékk höfuðhögg – gæti misst af undanúrslitaleiknum

Óvissa ríkir um þátttöku sænsku handknattleikskonunnar, Emmu Olsson hjá Fram, í undanúrslitaleik Fram og Vals í Coca Cola-bikarnum á næsta fimmtudag. Olsson fékk bylmingsskot í höfuðið eftir um stundarfjórðung í viðureign Hauka og Fram í annarri umferð Olísdeildarinnar í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18238 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -