- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Bjarni Ófeigur, Bjartur Már, Óskar, Viktor, Brljevic, Finnur, Kristín, Larsen

Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði þrjú mörk í níu skotum þegar lið hans IFK Skövde vann Ystads IF, 31:29, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Skövde er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig eftir 11 leiki....

Gummersbach áfram á sigurbraut

Gummersbach heldur áfram að innbyrða sigra í þýsku 2. deildinni í handknattleik og styrkja stöðu sína í efsta sæti deildarinnar. Í kvöld vann liðið Bietigheim með sjö marka mun, 32:25, á heimavelli. Eftir leikinn var greint frá því að...

Áfram styrkja Ólafur og félagar stöðu sína

Ólafur Andrés Guðmundsson skorði tvö mörk í kvöld þegar lið hans Montpellier hélt áfram sigurgöngu sinni í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Monpellier vann króatísku meistarana PPD Zagreb, 24:23, á heimavelli og hafa þar með þriggja stiga forskot á toppi...

Auður Brynja fór á kostum í fjórða sigri Víkinga

Auður Brynja Sölvadóttir fór á kostum með liði Víkings í kvöld er það lagði ungmennalið HK, 27:26, í hörkuleik í 8. umferð Grill66-deildar kvenna í handknattleik. Auður Brynja skoraði 12 mörk og var allt í öllu í fjórða sigurleik...
- Auglýsing-

Guðjón Valur hefur framlengt til ársins 2025

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari þýska 2. deildarliðsins Gummersbach, hefur framlengt samning sinn um þjálfun liðsins til ársins 2025. Félagið greindi frá þessu í kvöld eftir að lið þess vann Bietigheim með sjö marka mun, 32:25, á heimavelli í 14....

Döhler afgreiddi grannaslaginn

Phil Döhler, markvörður FH, sá til þess að FH-ingar unnu grannaslaginn við Hauka og þar með baráttuna um efsta sæti Olísdeildar karla í kvöld. Þjóðverjinn lokaði marki FH á kafla í síðari hálfleik sem veitti FH-liðinu tækifæri til þess...

Tveir úr Gróttu og tveir úr Fram í liði mánaðarins

Tveir leikmenn Gróttu og tveir úr Fram eru í liði nóvember mánaðar sem tölfræðiveitan HBStatz tók saman úr gögnum sínum og birti fyrr í dag. Einar Baldvin Baldvinsson, markvörður, og Andri Þór Helgason, vinstri hornamaður Gróttu, eru í liðinu auk...

Benedikt, Einar, Ágúst og Tjörvi sköruðu fram úr

Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður Vals var besti leikmaður Olísdeildar karla í handknattleik í nóvember samkvæmt niðurstöðum tölfræðiveitunnar HBStatz sem birti samantekt sína í dag. Valsarinn ungi skoraði að jafnaði sjö mörk í leik með Val í nóvember og var var...
- Auglýsing-

Aron er ennþá frá keppni

Aron Pálmarsson verður ekki með danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold í kvöld þegar það tekur á móti ungversku meisturunum Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Aron er ekki á leikskýrslu sem birt hefur verið fyrir leikinn sem hefst klukkan...

Dagskráin: Hafnarfjarðarslagur með hraðprófum – leikið í Víkinni

Tvö efstu lið Olísdeildar karla, Haukar og FH, hefja 11. umferð deildarinnar í sannkölluðum stórleik á heimavelli FH, Kaplakrika, í kvöld. Flautað verður leiks klukkan 19.30. Reynt verður að tryggja góða stemningu á Hafnarfjarðarslagnum. Þess vegna verður opið fyrir 500...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19326 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -