- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

„Þetta var ógeðslega gaman“

„Þetta var mjög erfiður sigur en þvílíkur karakter og vilji i liðinu. En þetta var ógeðslega gaman,“ sagði Hildigunnur Einarsdóttir sem skoraði fimm mörk í sjö skotum og var markahæst hjá Bayer Leverkusen í kvöld þegar liðið vann...

Mistókst að ná öðru sæti

Aroni Degi Pálssyni og samherjum í Alingsås mistókst að sitja einir að öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Þeir töpuðu á heimavelli fyrir IFK Ystads, 31:25, eftir að hafa verið fjórum mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 16:12. Aron...

Ekkert lát á sigurgöngu

Ekkert lát er á sigurgöngu danska meistaraliðsins Alaborg Håndbold í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla. Danska liðið, þar sem Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari, vann franska liðið Nantes örugglega á heimavelli í kvöld í B-riðli keppninnar, 32:24, er þar með...

Hvað ber morgundagurinn í skauti sér?

Í erfiðleikum síðustu mánaða í rekstri handknattleiksdeilda, sem þyngdist verulega þegar kórónuveiran stakk sér niður hér á landi snemma árs og hætta varð keppni á Íslandsmótinu, var strax hafist handa við að skera niður. Ekki bara í kostnaði við...
- Auglýsing-

Fimmtán af sautján jákvæðir

Fimmtán af 17 leikmönnum ungverska karlaliðsins Tatabanya eru komnir í einangrun eða hafa verið eftir að þeir reyndust vera smitaðir af kórónuveirunni. Þjálfarateymi og starfsmenn sitja einnig í súpunni. Hafa forráðamenn liðsins óskað eftir að viðureign liðsins við...

Roland er á batavegi

Roland Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands, og nú handknattleiksþjálfari er á góðum batavegi eftir að hafa veikst af kórónuveirunni við starf sitt í Zaporozhye. Hann er um þessar mundir aðstoðarþjálfari meistaraliðs Motor Zaporozhye í Úkraínu. „Ég hef verið hitalaus...

Danskur samherji Arons með kórónuveiruna

Danski landsliðsmaðurinn Casper U. Mortensen, samherji Arons Pálmarssonar hjá Barcelona, hefur greinst með kórónuveiruna. Hann er kominn í einangrun á heimili sínu í Barcelona og mun í einu og öllu fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda í borginni, eftir því sem greint...

Í dagsferð til Skopje

Leikmenn þýska liðsins Flensburg fara í dagsferð til Skopje í Norður-Makedóníu á morgun til þess að leika við Vardar í Meistaradeild karla í handknattleik. Vegna útbreiðslu kórónuveirunnar er ekki mikið um ferðir á milli Þýskalands og Skopje þessa dagana....
- Auglýsing-

„Ég er sæll, glaður og þakklátur“

„Marmiðið er að ná heilu keppnistímabili og njóta þess bara að spila handbolta eftir allt það sem á undan er gengið hjá mér,“ segir handknattleiksmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður Magdeburg í Þýskalandi þar sem hann hefur komið sér vel...

Molakaffi: Katsigiannis til Löwen og nýr þjálfari hjá CSKA

Rhein-Neckar Löwen hefur samið við markvörðurinn Nikolas Katsigiannis um að leika með liðinu út yfirstandandi leiktíð og hlaupa í skarðið fyrir Mikael Appelgren sem verður fjarri keppni næstu mánuði vegna meiðsla. Katsigiannis er 38 ára gamall og hefur víða...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18164 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -