- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Haukar í úrslitum í tíunda sinn og Valur í 17. skipti

Haukar og Valur eigast við í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í handknattleik á morgun í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum. Flautað verður til leiks klukkan 15.30. Haukar unnu bikarkeppnina fyrir ári í fimmta sinn. Lið félagsins leikur í tíunda sinn til úrslita í...

Hæpið að Baldur Fritz taki þátt í úrslitaleiknum

Ósennilegt er talið að Baldur Fritz Bjarnason leiki með ÍR í úrslitaleik bikarkeppni HSÍ gegn Haukum á morgun, laugardag. Baldur fór meiddur af leikvelli eftir átta mínútur í viðureign ÍR og KA í undanúrslitum í gærkvöld. Naut hann aðhlynningar...

Daninn er sagður vera valtur í sessi í París

Danski handknattleiksþjálfarinn Stefan Madsen virðist vera valtur í sessi hjá franska meistaraliðinu PSG. RThandball gerir því skóna að Spánverjinn Roberto Parrondo taki við af Madsen í lok leiktíðar. Parrondo hefur þjálfað Melsungen í tæp fimm ár. PSG hefur átt erfitt...

Andri og Viggó í jafntefli í Eisenach

Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og samherjar í HC Erlangen fengu annað stigið úr heimsókn sinni til Eisenach í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 25:25. Eisenach var þremur mörkum yfir í hálfleik, 13:10. Bæði lið þurftu á...
- Auglýsing-

Sveinn Brynjar skaut ÍR í úrslit í fyrsta sinn í 12 ár

Eftir ótrúlegan lokakafla tókst ÍR að leggja KA, 32:31, og tryggja sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik í fyrsta sinn í 12. Eins og fyrir 12 árum þá mæta ÍR-ingar Haukum í úrslitaleiknum. Sigurinn nú er mikið...

Ákafi Hauka fleytti þeim í úrslit í 10. sinn – sóknarleikurinn brást FH

Haukar leika til úrslita í bikarkeppni HSÍ í karlaflokki í tíunda sinn á laugardaginn. Þeir unnu sanngjarnan sigur á FH, 25:21, í undanúrslitum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Staðan var 11:9 fyrir Hauka að loknum fyrri hálfleik. Troðfullt...

Hælir Guðjóni Val á hvert reipi: „Hann er besti þjálfari í heimi“

„Goggi er búinn að vera hér í mörg, mörg ár. Fyrir mér er hann besti þjálfari í heimi,“ sagði Christoph Schindler framkvæmdastjóri Gummersbach í myndbandi á vegum félagsins þar sem hann svaraði spurningum frá stuðningsmönnum, m.a. um framtíð þjálfarans...

Kurr í frönskum þjálfurum vegna ráðningar Dujshebaev

Mikil óánægja kraumar meðal franskra handknattleiksþjálfara að ráða Talant Dujshebaev landsliðsþjálfara Frakklands í handknattleik karla. Segja þeir franska þjálfara verið sniðgengna þegar Guillaume Gille ákvað að segja starfi sínu lausu þótt hann ætti tvö ár eftir af starfssamningi sínum. Hafa...
- Auglýsing-

Bjarki missir væntanlega af Svíaleikjunum

Bjarki Már Elísson leikur ekki með ungverska meistaraliðinu One Veszprém næsta mánuðinn vegna meiðsla í hné. Félagið segir frá þessu en Bjarki Már mun hafa meiðst í viðureign One Veszprém og Kielce í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Vegna...

Þrefaldur áfangi Kára í bikarkeppninni

Kári Garðarsson er væntanlega fyrsti handknattleiksdómarinn sem dæmir leiki í úrslitahelgi bikarkeppninnar í handknattleik sem unnið hefur til verðlauna í bikarkeppninni í handknattleik, bæði sem leikmaður og þjálfari. Kári dæmdi undanúrslitaleik Vals og KA í bikarkeppni kvenna í gærkvöld ásamt...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18880 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -