- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Berglind hefur snúið heim til Fjölnis

Berglind Benediktsdóttir hefur ákveðið að klæðast Fjölnisbúningnum á ný. Ljósmynd/Fjölnir
- Auglýsing -


Berglind Benediktsdóttir hefur yfirgefið bikarmeistara Hauka og gengið á ný til liðs við uppeldisfélag sitt, Fjölni í Grafarvogi.
Berglind fór frá Fjölni yfir til Fram en lagði síðan leið sína til Hauka hvar hún hefur leikið við góðan orðstír í sex ár.


Berglind er þriðji leikmaðurinn sem bætist í hópinn hjá Fjölni fyrir næsta keppnistímabil í Grill 66-deildinni. Hinar eru Signý Pála Pálsdóttir markvörður sem kom frá Víkingi og Stefanía Ósk Engilbertsdóttir línukona sem kvaddi Aftureldingu og flutti yfir bæjarmörkin.

Konur – helstu félagaskipti 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -