- Auglýsing -
Bergrós Ásta Guðmundsdóttir unglingalandsliðskona og leikmaður KA/Þórs var besti og efnilegasti leikmaður Grill 66-deildar á síðustu leiktíð. Hún var verðlaunuð á uppskeruhátíð HSÍ síðdegis.
KA/Þór, sem vann Grill 66-deildina með nokkrum yfirburðum hreppti fimmverðlaun, af þeim sex sem veitt voru á uppskeruhátíðinni sem haldin var í höfuðstöðvum Símans í Ármúla.
Verðlaunahafar í Grill 66-deild kvenna:
Þjálfari ársins: Jónatan Þór Magnússon, KA/Þór.
Besti leikmaður: Ída Bjarklind Magnúsdóttir, Víkingi.
Besti sóknarmaður: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, KA/Þór.
Besti varnarmaður: Anna Þyrí Halldórsdóttir, KA/Þór.
Besti markvörður: Matea Lonac, KA/Þór.
Efnilegasti leikmaður: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, KA/Þór.
- Auglýsing -