- Auglýsing -
Á árlegu kjöri íþróttafólks Gróttu síðastliðinn þriðjudag voru hjónin Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir útnefnd sjálfboðaliðar ársins af Handknattleiksdeild Gróttu.
„Þau hafa bæði unnið lengi og mikið óeigingjarnt starf fyrir handboltann í Gróttu og hafa hlotið bronsmerki félagsins. Undantekningalaust vinna þau bæði á leikjum meistaraflokks karla og meistaraflokks kvenna og fara í öll þau hlutverk sem vantar hverju sinni með bros á vör. Það eru mikil forréttindi að hafa svona gullmola sem sjálfboðaliða hjá deildinni,“ segir í tilkynningu frá Handknattleiksdeild Gróttu.
Ída Margrét valin íþróttakona Gróttu
Antoine Óskar valinn íþróttakarl Gróttu
- Auglýsing -



