- Auglýsing -
Berta Rut Harðardóttir og liðsfélagar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir IF Hallby, 34:29, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í sænsku úrslitakeppninni í úrvalsdeildinni í Hallby í gærkvöldi.
Kristianstad er í áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina, með 13 stig, einu stigi meira en Hallby sæti neðar.
Kristianstad á að vísu leik til góða á Hallby og getur því komið sér í betri stöðu með sigri í þeim leik. Berta Rut skoraði eitt mark fyrir Kristianstad í leiknum í gærkvöldi.
Hún er 25 ára gömul og leikur sem hægri hornamaður. Hefur Berta Rut leikið með Kristianstad frá sumrinu 2023.
- Auglýsing -


