Berta Rut Harðardóttir hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með félaginu frá og með næsta tímabili. Berta Rut sem er uppalin Haukakona snýr heim að Ásvöllum eftir fjögur ár erlendis þar sem hún hefur leikið með Holstebro Håndbold í Danmörku og nú síðasta Kristianstad HK í Svíþjóð.
Berta Rut er örvhent og getur leikið sem hægri skytta og í hægra horni.
„Það er mikið ánægjuefni að fá Bertu Rut heim í Hauka en hún mun án efa styrkja lið Hauka til muna og auka breiddina í hægri skyttustöðunni. Berta, sem verður 26 ára í sumar, lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka 16 ára gömul og var ein af lykilmönnum Haukaliðsins áður en hún lagði land undir fót.
Koma Bertu heim í Hauka hjálpar Haukum í þeim markmiðum að vera í baráttunni um alla þá titla sem í boði eru og hlökkum við til að sjá hana á ný í Haukatreyjunni á parketinu á Ásvöllum á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu Hauka í morgun.
Ótrúlega gaman
„Það er ótrúlega gaman að vera komin aftur heim til Hauka. Ég hlakka mikið til að verða hluti af þessum frábæra hópi, leggja mitt af mörkum fyrir liðið og halda áfram að bæta mig sem leikmann,“ er haft eftir Bertu Rut í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka.



