Dregið verður í fyrstu umferð Coca-Cola bikars karla, 32 liða úrslit, á morgun kl. 11 á skrifstofu Handknattleikssambands Íslands, HSÍ.
Nítján lið eru skráð til leiks og því verður dregið í fjórar viðureignir sem skulu fara fram þriðjudaginn 6. október, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HSÍ.
Þátttökulið í stafsrófröð:
Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, Haukar, HK, ÍBV, ÍBV 2
ÍF Mílan, ÍR, KA, Kría, Selfoss, Stjarnan, Valur, Víkingur, Vængir Júpíters
Þór Ak.
Þau lið sem sitja hjá:
Valur
ÍBV
Afturelding
FH
Hægt verður að fylgjast með drættinum í gegnum Facebook-síðu HSÍ og á youtube-rás.
- Auglýsing -