Vegna hertra sóttvarnarreglna heilbrigðisráðherra hefur leikjum Þórs og KA annarsvegar og ÍBV 2 og Vængja Júpiters hins vegar í fyrstu umferð Coca-Cola bikars karla í handknattleik, sem til stóð að færu fram í kvöld á Akureyri og í Vestmannaeyjum, verið frestað um ótiltekinn tíma.
Í gær var viðureign Hauka og Selfoss sem fram átti að fara í sömu keppni einnig slegið á frest.
- Auglýsing -